Ég var að fá comment frá einni sem ég kaupi stundum af fyrir Shop Copenhagen og hún sagði að ég væri TRUE FASHION GODESS !!!
Og þegar að ég las þetta fyrir Buggu frænku þá sagði hún '' Dísúss hvað þetta á vel við þig,þú ert so sannarlega TRUE FASHION GODESS.

''
Og ég hef nú stundum pælt í því hvaðan þetta tískuæði í mér kemur og eftir ekki so langa umhugsun þá komst ég að þeirri niðurstöðu að ég hef þetta frá nöfnu minni,henni ömmu Gúrý.
Amma er orðin 83 ára,er eiginlega bundin við hjólastól og frekar mikil lasilingur og oftast rúmföst EN er sko klárlega alltaf með púslinn á öllu sem er að gerast í tískunni,þá MEINA ÉG GAMLINGATÍSKUNNI.

Og hún er sko KLÁRLEGA best klædda konan á Hrafnistu og það er sko enginn lygi.

Hún er kanski ekki alveg með 'etta sona þegar að hún er að velja á okkur syst- og frændsystkyni. Eins og t.d ég og Tinna sys,það eru ekki ófá jólin sem mar hefur fengið Titanic hálsmen,mellubönd,laxableika velúr galla frá hinni frábæru búð Quelle ásamt skrautlegum náttfötum og fleira.

Ekkert jafn spennandi en að opna jólapakkana frá ömmu G.
Ég veit ekki hvað mikið af dóti amma hefur keypt eftir að hún hefur séð mig með það, allskonar augnskugga,ilmvötn,klúta og ef hún gæti verið í þessum pinnahælum sem ég er í TRUST ME she would buy it and were it all the time in Hrafnistu.
Stundum er amma rosalega lasinn og við höldum að hún sé bara á leiðinni up stairs to the ''Big man''.

Og allir byrjaðir að búa sig undir það versta EN þá kemur út nýr bæklingur frá Hrafnhildi og Quelle og ég sver það,það er eins og gamla fái lifnipillu og hætti við að fara því hún verður sko að fá svartar buxur og nýja blússu.

Ég hef ALLTAF sagt að amma sé eins og Cher og kakkalakkar,she an'it going no wear.
Anyways þá er ég viss um að ég verði eins og amma Gúrý þegar að ég verð eldgömul,kaupóð og alltaf á línunni hjá Ísabellu að segja henni að koma skutla mér í einhverjara tískubúðir því ég VERÐ að eignast þetta og hitt. Gjörsamlega að gera alla ga-ga í kringum mig.

Enda TRUE FASHION GODESS sem hér um er að ræða og það eldist ekki af manni,just look at my granny.